Sumar og sól

Já góðan dag:)

Marg og mikið búið að gerast síðan ég bloggaði síðast hhhhhmmmm??? Eitt stykki suðurlandsskjálfti he he og húsin sem ég talaði um í síðustu færslu sem var verið að reisa,, eru horfinW00t jamm þau fóru örugglega í heljarstökk í þessum hristingi sem kom.....  En við sluppum með skrekkinnCool

Við fórum í okkar jómfrúarferð með fellihýsið og það var algjörlega frábært og er ég hrikalega glöð með þessi kaup takkGrin  Og við vorum á tjaldstæðinu við Seljalandsfoss frábær staður,m og p komu með og Atli hennar Maríönnu Guðný og fjsk voru og foreldrar hans og systir hans Ingvars og fleiri og fleiri.......Rosalega gaman.nýja fellihýsið okkar

Svo fóru krakkarnir í sumarbúðir í Ævintýraland í Borgarfirði og það var svvvooooo mikið ævintýri hjá þeim að það var non stopp munnræpa í 2 daga þegar þau komu heimCoolWhistling  Yndislegt og eykur sjálfstraustið hjá þeim. landsmót 067

Og þá skrapp mamman á landsmót hestamanna og var það æðisleg upplifun þó ég hafi ekki neitt vit á hestum og held að þeir séu í búrum en  ekki stíum þá var þetta geggjað og kunna hestamenn að skemmta sér og öðrum.....heheheheheheheh

landsmót 092

Ég er búin að setja fleiri myndir inn í albúm og fleiri munu koma.... Rólegheit hjá okkur um helgina kíkjum kanski í bústaðar heimsókn eða chilla bara

kv Lóa og ungarnir


« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Saknaði þín í síðustu viku

En til lukku með fellihýsið

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 11.7.2008 kl. 20:43

2 Smámynd: Soffía Valdimarsdóttir

Í búrum!!! þú ert nú meiri kellingin. En eru það ekki básar bara?

Soffía Valdimarsdóttir, 12.7.2008 kl. 09:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband